Fara í innihald

„Tölva“: Munur á milli breytinga

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Efni eytt Efni bætt við
Bjarga 1 heimildum og merki 0 sem dauðar.) #IABot (v2.0.8
Lína 9: Lína 9:
== Orðsifjar og íslensk heiti ==
== Orðsifjar og íslensk heiti ==
[[Mynd:Icelandic_words_for_computer.jpg|thumb|Ýmis orð yfir tölvur yfir árin skv. timarit.is]]
[[Mynd:Icelandic_words_for_computer.jpg|thumb|Ýmis orð yfir tölvur yfir árin skv. timarit.is]]
Þegar fyrsta tölvan kom til landsins voru ýmis nöfn höfð um hana, eins og ''rafreiknir'',<ref>http://tos.sky.is/tos/to/word/isl/4366/ {{Webarchive|url=https://web.archive.org/web/20070927230004/http://tos.sky.is/tos/to/word/isl/4366/ |date=2007-09-27 }} Tölvuorðasafnið: Rafreiknir</ref> ''rafheili'', ''rafeindareiknir'' og einnig enska tökuorðið ''computer''. [[Vilmundur Jónsson]], landlæknir, hafði á sínum tíma stungið upp á orðinu ''hjarni'' (= heili). Það var hins vegar ekki fyrr en árið [[1965]] að [[Sigurður Nordal]] [[prófessor]] við [[HÍ]] stakk upp á nafninu '''[[tölva]]'''.<ref name="vis2">{{vísindavefurinn|1013|Er jafnrétt að nota orðið tölva og talva?}}</ref> Orðið er [[samrunaorð]] frá orðunum [[tala]] og [[völva]] og fallbeygist orðið eins og ‚völva‘, ‚slöngva‘ eða [[sérnafn]]ið [[Röskva]]:<ref name="vis2"/><ref name="vis">{{vísindavefurinn|4873|Af hverju segja allir „talva“ í staðinn fyrir „tölva“?}}</ref><ref>{{BÍN|14768|orð=tölva}}</ref>
Þegar fyrsta tölvan kom til landsins voru ýmis nöfn höfð um hana, eins og „rafreiknir“,<ref>http://tos.sky.is/tos/to/word/isl/4366/ {{Webarchive|url=https://web.archive.org/web/20070927230004/http://tos.sky.is/tos/to/word/isl/4366/ |date=2007-09-27 }} Tölvuorðasafnið: Rafreiknir</ref> „rafheili“, „rafeindareiknir“ og einnig enska tökuorðið ''computer''“. Margir innan háskólans kölluðu tækið „rafeindaheilann“. [[Vilmundur Jónsson]], landlæknir, hafði á sínum tíma stungið upp á orðinu „hjarni“ (sem merkir „[[heili]]“). Það var hins vegar ekki fyrr en árið [[1965]] að [[Sigurður Nordal]] prófessor við Háskóla Íslands stakk upp á nafninu tölva.<ref name="vis2">{{vísindavefurinn|1013|Er jafnrétt að nota orðið tölva og talva?}}</ref> Orðið er [[samrunaorð]] orðanna [[tala]] og [[völva]] og fallbeygist eins og „völva“, „slöngva“ eða sérnafnið [[Röskva]]:<ref name="vis2"/><ref name="vis">{{vísindavefurinn|4873|Af hverju segja allir „talva“ í staðinn fyrir „tölva“?}}</ref><ref>{{BÍN|14768|orð=tölva}}</ref> [[Þorsteinn Gylfason]] hefur sagt frá því að hann var viðstaddur þegar Sigurður fékk hugmyndina, og að orðið hafi verið orðið alkunnugt á nokkrum vikum og öll hin [[nýyrði]]n dáið drottni sínum.
: [[nefnifall]]: ''tölva''
: [[þolfall]]: ''tölvu''
: [[þágufall]]: ''tölvu''
: [[eignarfall]]: ''tölvu''
Fyrsta tölvan sem kom til íslands hafði verið kölluð ''[[Rafeindaheilinn]]'' meðal margra innan Háskóla Íslands. [[Þorsteinn Gylfason]] hefur sagt frá því að hann var viðstaddur þegar Sigurður fékk hugmyndina, og að orðið hafi verið orðið alkunnugt á nokkrum vikum og öll hin [[nýyrði]]n [[wikt:en:deyja drottni sínum#Icelandic|dáið drottni sínum]].


Rétt nefnifallsmynd er ‚tölva‘ en ekki ‚talva‘,<ref name="vis2"/><ref name="vis"/><ref>{{BÍN|q=talva|orð=talva}}</ref><ref>{{vísindavefurinn|4206|Er ENNÞÁ rangt að nota orðið „talva“ í staðinn fyrir „tölva“?}}</ref> þó notkun þeirrar nefnifallsmyndar sé byrjuð að heyrast í vaxandi mæli er enn mælt með notkun nefnifallsmyndarinnar ‚tölva‘.<ref name="vis"/>
Rétt nefnifallsmynd er „tölva“ en ekki „talva“.<ref name="vis2"/><ref name="vis"/><ref>{{BÍN|q=talva|orð=talva}}</ref><ref>{{vísindavefurinn|4206|Er ENNÞÁ rangt að nota orðið „talva“ í staðinn fyrir „tölva“?}}</ref><ref name="vis"/>


== Innri gerð tölva ==
== Innri gerð tölva ==

Útgáfa síðunnar 20. október 2023 kl. 14:48

Apple II einkatölva

Tölva er rafeindatæki sem notað er við hraðvirka úrvinnslu, geymslu og birtingu mikils magns gagna eftir nákvæmri forskrift forrits. Gagnvart almennum notanda samanstendur tölva af skjá, lyklaborði, mús, hátölurum og kassa sem inniheldur tölvuna sjálfa, ásamt diskadrifum og hugsanlegum fleiri inntaks- og úttaksmöguleikum.

Tölvan er líklega ein áhrifamesta uppfinning 20. aldarinnar og tölvutækni hefur gjörbreytt aðstæðum fólks til vinnu og leiks um allan heim.

IBM tilkynnti árið 2018 að þeir hefðu búið til minnstu tölvu í heimi (1 millimeter á kant, og notar blockchain-tækni), en mánuðum síðar í júní 2018 tilkynnti Háskóli Michigan minnstu tölvu (0.3 millimetrar á kant; tölvan frá IBM 10 sinnum stærri),[1] þar sem grjón er risastórt í samanburði. Sú tölva er með þráðlausu "neti", en þar sem hún er of lítil fyrir loftnet er ljós notað.

Orðsifjar og íslensk heiti

Ýmis orð yfir tölvur yfir árin skv. timarit.is

Þegar fyrsta tölvan kom til landsins voru ýmis nöfn höfð um hana, eins og „rafreiknir“,[2] „rafheili“, „rafeindareiknir“ og einnig enska tökuorðið „computer“. Margir innan háskólans kölluðu tækið „rafeindaheilann“. Vilmundur Jónsson, landlæknir, hafði á sínum tíma stungið upp á orðinu „hjarni“ (sem merkir „heili“). Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1965Sigurður Nordal prófessor við Háskóla Íslands stakk upp á nafninu tölva.[3] Orðið er samrunaorð orðanna „tala“ og „völva“ og fallbeygist eins og „völva“, „slöngva“ eða sérnafnið Röskva:[3][4][5] Þorsteinn Gylfason hefur sagt frá því að hann var viðstaddur þegar Sigurður fékk hugmyndina, og að orðið hafi verið orðið alkunnugt á nokkrum vikum og öll hin nýyrðin dáið drottni sínum.

Rétt nefnifallsmynd er „tölva“ en ekki „talva“.[3][4][6][7][4]

Innri gerð tölva

Tölva samanstendur af nokkrum einingum eða hlutum sem vinna saman. Venjan er að þeim sé raðað á móðurborð.

Minni

Minni tölva er röð af númeruðum einingum sem hver inniheldur tölulegar upplýsingar. Upplýsingarnar geta ýmist verið skipanir sem tölvan framkvæmir eða gögn sem tölvan les eða skrifar.

Stærð, fjöldi og gerð minniseininganna er mjög breytilegur milli tölva og flestar nútíma tölvur nota nokkrar mismunandi gerðir minnis (td. flýtiminni, vinnsluminni og harða diska).

Miðverk

Miðverkið (e. Central processing unit) samanstendur af stýri-, reikni- og rökverki ásamt inniminni, staflageymslu, skipunarpípu o.fl.. Í dag er miðverkið venjulega haft á einni kísilflögu sem kallast (ör)gjörvi.

Örgjörvinn er kísilflaga samsett úr mörgum smárum og öðrum smáhlutum og sér um að túlka og vinna úr öllum aðgerðum forritanna á tölvunni og venjulega úr öllum ílags- og frálagsbúnaði.

Ílag og frálag (inntak og úttak)

Ílags- og frálagsbúnaður (e. input- and outputdevices) er heiti sem er notað bæði þegar verið er að tala um forrit og búnað eins og lyklaborð, skjá, harðadiska og netkort. Til er búnaður sem tekur annað hvort bara við upplýsingum eða sendir bara frá sér (e. input or output-only), en flest tæki gera hvort tveggja, jafnvel prentarar og skjáir. Á öllum venjulegum heimilistölvum er grunnstýringarkerfi eða BIOS (e. Basic Input/Output System ) þetta kerfi er geymt á lítilli flögu sem er á móðurborðinu. Örgjörvinn notar grunnstýringarkerfið þegar tölvan er ræst, það sér um að koma fyrir nauðsynlegum upplýsingum í vinnsluminni tölvunar svo stýrikerfið geti ræst sig. Jafnframt stjórnar grunnstýringarkerfið upplýsingaflæði á milli ílags- og frálagsbúnaðar og kjarna stýrikerfisins.

Tegundir

Tengt efni

Heimildir

  1. https://www.cnet.com/news/university-of-michigan-outdoes-ibm-with-worlds-smallest-computer/
  2. http://tos.sky.is/tos/to/word/isl/4366/ Geymt 27 september 2007 í Wayback Machine Tölvuorðasafnið: Rafreiknir
  3. 3,0 3,1 3,2 „Er jafnrétt að nota orðið tölva og talva?“. Vísindavefurinn.
  4. 4,0 4,1 4,2 „Af hverju segja allir „talva" í staðinn fyrir „tölva"?“. Vísindavefurinn.
  5. „Beyging orðsins „tölva". á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls
  6. „Beyging orðsins „talva". á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls
  7. „Er ENNÞÁ rangt að nota orðið „talva" í staðinn fyrir „tölva"?“. Vísindavefurinn.

Tenglar