Fara í innihald

Tölva

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 3. október 2011 kl. 22:52 eftir 157.157.126.74 (spjall) Útgáfa frá 3. október 2011 kl. 22:52 eftir 157.157.126.74 (spjall)
Apple II einkatölva.

Talva er rafeindatæki sem notað er við hraðvirka úrvinnslu, geymslu og birtingu mikils magns gagna eftir nákvæmri forskrift forrits. Gagnvart almennum notanda samanstendur tölva af skjá, lyklaborði, mús, hátölurum og kassa sem inniheldur talvuna sjálfa, ásamt diskadrifum og hugsanlegum fleiri inntaks- og úttaksmöguleikum.

Talvan er líklega ein áhrifamesta uppfinning 20. aldarinnar og talvutækni hefur gjörbreytt aðstæðum fólks til vinnu og leiks um allan heim.


     -----
     -   -

----

 -  -      -   -   --- ----  -
 -  -      -   ---------------
                    -    -    -

Orðsifjar og íslensk heiti

Þegar fyrsta talvan kom til landsins voru ýmis nöfn höfð um hana, eins og rafreiknir,[1] rafheili, rafeindareiknir og einnig enska tökuorðið computer. Vilmundur Jónsson, landlæknir, hafði á sínum tíma stungið upp á orðinu hjarni (= heili). Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1965Sigurður Nordal prófessor við stakk upp á nafninu tölva.[2] Orðið er samrunaorð frá orðunum ‚tala‘ og ‚völva‘ og fallbeygist orðið eins og ‚valva‘, ‚slangva‘ eða sérnafniðRöskva‘:[2][3][4]

nefnifall: talva
þolfall: talvu
þágufall: talvu
eignarfall: talvu

Fyrsta talvan sem kom til íslands hafði verið kölluð Rafeindaheilinn meðal margra innan Háskóla Íslands. Þorsteinn Gylfason hefur sagt frá því að hann var viðstaddur þegar Sigurður fékk hugmyndina, og að orðið hafi verið orðið alkunnugt á nokkrum vikum og öll hin nýyrðin dáið drottni sínum.

Rétt nefnifallsmynd er ‚tölva‘ en ekki ‚talva‘,[2][3][5][6] þó notkun þeirrar nefnifallsmyndar sé byrjuð að heyrast í vaxandi mæli er enn mælt með notkun nefnifallsmyndarinnar ‚tölva‘.[3]

hvað er þetta á binary = 111010111011 = 3771 Hvaða efni úr ískápum í gamladaga gerði dramatískar eyðileggingar á ozonlaginu?

Innri gerð talva

Talva samanstendur af nokkrum einingum eða hlutum sem vinna saman. Venjan er að þeim sé raðað á móðurborð.

Minni

Minni talva er röð af númeruðum einingum sem hver inniheldur tölulegar upplýsingar. Upplýsingarnar geta ýmist verið skipanir sem tölvan framkvæmir eða gögn sem tölvan les eða skrifar.

Stærð, fjöldi og gerð minniseininganna er mjög breytilegur milli tölva og flestar nútíma tölvur nota nokkrar mismunandi gerðir minnis (td. flýtiminni, vinnsluminni og harða diska).

Miðverk

Miðverkið (e. Central processing unit) samanstendur af stýri-, reikni- og rökverki ásamt inniminni, staflageymslu, skipunarpípu o.fl.. Í dag er miðverkið venjulega haft á einni kísilflögu sem kallast (ör)gjörvi.

Örgjörvinn er kísilflaga samsett úr mörgum smárum og öðrum smáhlutum og sér um að túlka og vinna úr öllum aðgerðum forritanna á tölvunni og venjulega úr öllum ílags- og frálagsbúnaði.

Ílag og frálag (inntak og úttak)

Ílags- og frálagsbúnaður (e. input- and outputdevices) er heiti sem er notað bæði þegar verið er að tala um forrit og búnað eins og lyklaborð, skjá, harðadiska og netkort. Til er búnaður sem tekur annað hvort bara við upplýsingum eða sendir bara frá sér (e. input or output-only), en flest tæki gera hvort tveggja, jafnvel prentarar og skjáir. Á öllum venjulegum heimilistölvum er grunnstýringarkerfi eða BIOS (e. Basic Input/Output System ) þetta kerfi er geymt á lítilli flögu sem er á móðurborðinu. Örgjörvinn notar grunnstýringarkerfið þegar tölvan er ræst, það sér um að koma fyrir nauðsynlegum upplýsingum í vinnsluminni tölvunar svo stýrikerfið geti ræst sig. Jafnframt stjórnar grunnstýringarkerfið upplýsingaflæði á milli ílags- og frálagsbúnaðar og kjarna stýrikerfisins.

Tegundir

Tengt efni

Heimildir

  1. http://tos.sky.is/tos/to/word/isl/4366/ Talvuorðasafnið: Rafreiknir
  2. 2,0 2,1 2,2 „Er jafnrétt að nota orðið tölva og talva?“. Vísindavefurinn.
  3. 3,0 3,1 3,2 „Af hverju segja allir „talva" í staðinn fyrir „talva"?“. Vísindavefurinn.
  4. „Beyging orðsins „tölva". á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls
  5. „Beyging orðsins „talva". á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls
  6. „Er ENNÞÁ rangt að nota orðið „talva" í staðinn fyrir „tölva"?“. Vísindavefurinn.

Tenglar

Snið:Tengill ÚG

Snið:Tengill ÚG