Afríkanska
Afríkanska Afrikaans | ||
---|---|---|
Málsvæði | Suður-Afríka | |
Heimshluti | Sunnanverð Afríka | |
Fjöldi málhafa | 16 milljónir | |
Ætt | Indóevrópskt Germanskt | |
Skrifletur | Latneskt stafróf | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Suður-Afríka | |
Stýrt af | Die Taalkommissie | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | af
| |
ISO 639-2 | afr
| |
SIL | AFR
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Afríkanska (afríkanska: Afrikaans) er germanskt mál og indóevrópskt tungumál sem er talað í Suður-Afríku og Namibíu. Hún er opinbert tungumál í Suður-Afríku og er töluð af yfir 16 milljónum manna. Afríkanska hefur þróast úr hollensku. Orðið Afrikaans þýðir hollenska sem er töluð í Afríku eða bara afríkanska. Fólk sem talar afríkönsku skilur hollensku. Á afríkönsku er IJ úr hollensku breytt í Y. (dæmi: hol: IJslands, afr: Yslands). Munurinn á afríkönsku og hollensku felst í ýmsum atriðum í málfræði og stafsetningu. Afríkanska hefur dreifða landfræðilega notkun sem opinbert tungumál, auk þess að vera töluð víða sem annað eða þriðja tungumál.
Það eru þrjár mállýskur í afríkönsku. Höfðaborg er sú borg í Suður-Afríku þar sem flest fólk hefur afríkönsku að móðurmáli og er afríkanska algengasta tungumálið þar.
Þrátt fyrir að hollenska og afríkanska séu gagnkvæmt skiljanlegar og því ef til vill réttlætanlegt að nefna hana hollenska mállýsku er nokkur málfræðimunur. Þannig hefur til dæmis málfræðileg afkynjun nafnorða átt sér stað í afríkönsku en hollenska hefur hvorugkyn og samkyn.
Nokkrar setningar og orð
Afrikaans | Íslenska |
---|---|
Hallo | Halló |
Goeiedag | Góðan daginn |
Goeienaand | Gott kvöld |
Hoe gaan dit met jou? | Hvað segirðu gott? |
Dit gaan goed met my. | Ég segi bara fínt |
Dankie | Takk |
Asseblief | Gerðu svo vel |
Ja | Já |
Nee | Nei |
Praat jy Yslands? | Talarðu íslensku? |
Ek praat net 'n bietjie Afrikaans. | Ég tala bara smá afríkönsku. |
Ek verstaan nie. | Ég skil ekki. |
My naam is ... | Ég heiti ... |
Tot siens | Bless |
Tenglar
Germönsk tungumál Indóevrópsk tungumál | ||
---|---|---|
Tungumál: Afríkanska | Danska | Enska | Færeyska | Hollenska | Íslenska | Jiddíska | Lúxemborgska | Norska | Sænska | Þýska | ||
Mállýskur: Alemanníska | Alsatíska | Flæmska | Frísneska | Nýlendualemanníska | Lágþýska | Limburgíska |