Jean Baptiste Joseph Fourier
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/aa/Joseph_Fourier.jpg/220px-Joseph_Fourier.jpg)
(Jean Baptiste) Joseph Fourier (21. mars 1768 – 16. maí 1830) var franskur barón, verkfræðingur og stærðfræðingur. Hann er þekktastur fyrir rannsóknir sínar á varmaleiðni og á hornafallaröðum. Þessar raðir eru við hann kenndar og kallast Fourier-raðir og hafa gífurlega þýðingu í eðlisfræði, verkfræði og á fleiri sviðum, auk þess að vera stærðfræðilega áhugaverðar.