Rúsína
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5d/Sunmaid-Raisin-Pile.jpg/250px-Sunmaid-Raisin-Pile.jpg)
Rúsínur eru þurrkuð vínber. Rúsínur eru framleiddar víða um heiminn en þær má borða hráar eða nota í matreiðslu. Orðið „rúsína“ á rætur að rekja til franska orðsins raisin sem þýðir „vínber“, en á frönsku er rúsína kölluð raisin sec sem þýðir „þurrkað vínber“. Franska orðið á rætur að rekja til latneska orðsins racemus sem þýðir „vínberjaklasi“.
Oftast eru rúsínur sólþurrkaðar en stundum eru þær settar í vatn og svo er vatninu náð úr þeim. Rúsínur eru í flestum tilfellum framleiddar úr steinlausum vínberjum þannig að engir steinar verði í rúsínunum. Rúsínur innihalda 60–70% ávaxtasykur ásamt steinefnum og trefjum. Viðurkennt er að rúsínur valda vindgangi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Svar við „Úr hvaða ávexti eru rúsínur framleiddar?“ á Vísindavefnum. Sótt 3. september 2012.
- Svar við „Hvers vegna valda rúsínur vindgangi?“ á Vísindavefnum. Sótt 3. september 2012.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Raisin.