Fara í innihald

Paul McCartney

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 7. janúar 2016 kl. 18:58 eftir Berserkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. janúar 2016 kl. 18:58 eftir Berserkur (spjall | framlög) (→‎Einkalíf)
Paul McCartney á sviði í Prag.

Sir James Paul McCartney (fæddur 18. júní 1942) er breskur söngvari, tónlistarmaður og lagahöfundur. Hann var einn af meðlimum Bítlanna. Eftir Bítlana hóf hann sólóferil undir eigin nafni og með hljómsvetinni Wings. Hann er í heimsmetabók Guinnes fyrir að vera sá tónlistarmaður og lagahöfundur sem mestum árangri hefur náð í tónlistarsögunni, með 60 gulldiska og 100 milljónir seldra platna.

Einkalíf

Paul hefur misst bæði móður sína, Mary McCartney, þann (31. október 1956) og konu, Lindu Louise Eastman McCartney, þann (17. apríl 1998), úr brjóstakrabbameini. Paul eignaðist 3 börn með Lindu: Mary, Stellu og James en hann gekk einnig dóttur hennar frá fyrra sambandi, Heather, í föðurstað. Árið 2003 eignaðist hann dótturina Beatrice með þáverandi eiginkonu, Heather Mills. Hann hefur gifst tvisvar eftir samband sitt með Lindu, síðast Nancy Shevell árið 2011.

Paul er grænmetisæta og hefur lagt baráttunni fyrir dýravelferð lið. Þar að auki hefur hann barist gegn jarðsprengjum með eiginkonum sínum Lindu og Heather. Paul McCartney hefur einu sinni komið til Íslands, þar sem hann meðal annars fór í Perluna en þar var ráðstefna um jarðsprengjur.[1]

Sólóplötur

  • McCartney (1970)
  • Ram (1971) (Paul & Linda McCartney)
  • McCartney II (1980)
  • Tug of War (1982)
  • Pipes of Peace (1983)
  • Give My Regards to Broad Street (1984)
  • Press to Play (1986)
  • Снова В СССР (1988) (ábreiðuplata)
  • Flowers in the Dirt (1989)
  • Off the Ground (1993)
  • Flaming Pie (1997)
  • Run Devil Run (1999) (ábreiðuplata)
  • Driving Rain (2001)
  • Chaos and Creation in the Backyard (2005)
  • Memory Almost Full (2007)
  • Kisses on the Bottom (2012) (ábreiðuplata)
  • New (2013)

Wings

  • Wild Life (1971)
  • Red Rose Speedway (1973)
  • Band on the Run (1973)
  • Venus and Mars (1975)
  • Wings at the Speed of Sound (1976)
  • London Town (1978)
  • Back to the Egg (1979)


  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tilvísanir

  1. Paul Mccartney á Íslandi Mbl. Skoðað 7. janúar 2016