Perlan
64°07′45″N 21°55′09″V / 64.12917°N 21.91917°V
- Þessi grein fjallar um bygginguna Perluna en „Perlan“ getur einnig átt við sanddæluskip. Til að sjá aðrar greinar má sjá greinina perla.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/07/View_From_Perlan_Viewing_Deck.jpg/200px-View_From_Perlan_Viewing_Deck.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e3/Nautholsvik.lofti.jpg/220px-Nautholsvik.lofti.jpg)
Perlan er bygging sem er staðsett efst á Öskjuhlíðinni í Reykjavík. Arkitekt byggingarinnar var Ingimundur Sveinsson og var byggingin vígð 21. júní árið 1991. Perlan hvílir ofan á sex hitaveitugeymum sem rúma samtals 24 milljónir lítra af heitu vatni.
Starfsemi í Perlunni
[breyta | breyta frumkóða]Á fyrstu hæð Perlunnar er safn sem kallast Jöklar og íshellir. Inni í einum tankinum er manngerður íshellir sem líkir eftir náttúrulegum íshelli, sem er hannað og byggt af Johan Larsson. Þar inni er 10 gráðu frost.
Aðrar sýningar eru: Náttúruminjasafn, Norðurljósasafn, Stjörnuver og Landið, Ströndin og Hafið.
Á fjórðu hæðinni er kaffihús, minjagripaverslun og útsýnispallur.
Á fimmtu hæðinni er veitingastaður og kaffihús sem er með útsýni yfir Reykjavík og Faxaflóann.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Perlan Museum Official Website Geymt 10 ágúst 2017 í Wayback Machine
- Út í bláinn Restaurant Geymt 4 september 2017 í Wayback Machine
- Kaffitár Café
- Rammagerðin gift shop