Lóa (myndasögur)
- Fyrir íslenska myndasöguhöfundinn, sjá Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
Lóa (franska: Lou!) er heiti á vinsælum frönskum myndasögum um táningsstúlkuna Lóu eftir listamanninn Julien Neel. Sagan telur átta bækur á frummálinu. Sagnaflokkurinn hefst þegar Lóa er tólf ára, en átján ára þegar honum lauk. Sögurnar hafa allar komið út á íslensku á vegum Frosks útgáfu. Teiknimyndaþættir fyrir sjónvarp hafa verið gerðir um ævintýri Lóu og leikin kvikmynd árið 2014.
Söguþráður
[breyta | breyta frumkóða]Lóa er sjálfstæður og skapandi unglingur sem elst upp hjá ungri einstæðri móður. Móðirin er sveimhugi sem skrifar vísindaskáldsögur og eyðir mestum tíma í að spila tölvuleiki. Ástarmál þeirra mæðgna eru fyrirferðarmiklar í sögunum, en jafnframt fjalla þær um vináttu, söknuð og vandamál hversdagslegs lífs á broslegan hátt. Lóa eldist með hverri bók og viðfangsefni og hugsanir söguhetjunnar verða fullorðinslegri.
Bækur
[breyta | breyta frumkóða]- Trúnaðarkver (Journal infime, 2004) [ísl. útgáfa 2012]
- Grafarþögn (Mortebouse, 2005) [ísl. útgáfa 2013]
- Á hverfanda hveli (Le cimetière des autobus, 2006) [ísl. útgáfa 2014]
- Ástarsæla (Idylls, 2007) [ísl. útgáfa 2016]
- Laser Ninja (Laser Ninja, 2009) [ísl. útgáfa 2017]
- Kofinn (L'Age de Cristal, 2012) [ísl. útgáfa 2018]
- Framtíðarsýn (La cabane, 2016) [ísl. útgáfa 2019]
- Blússandi meðbyr (En route vers de nouvelles aventures, 2018) [ísl. útgáfa 2019]